Lýsing
Meðhöndlun og notkun
Geymist í frysti við -18°C
Pizzadeig er viðkvæm frystivara sem má ekki vera lengi í stofuhita
- Notkun: Takið deigið úr frysti 1-2 sólarhringum fyrir notkun og látið hefast í kæliskáp í lokuðu íláti eða á disk með plastfilmu yfir. Takið deigið úr kæliskápnum og geymið við stofuhita í um klukkustund fyrir notkun
- eða Takið deigið úr frysti samdægurs 4-5 klst fyrir notkun og bleytið vel með köldu vatni. Geymið á borði við stofuhita í lokuðu íláti eða á disk með plastfilmu yfir. Ef deigið er ekki bleytt þornar ysta lagið og þá verður erfiðara að vinna það.